Hausmynd:Jón G Ingibergsson

Álsey VE 2
    ...þar sem hlutirnir gerast!

 

07.01.2012 21:03

Með fullfermi af loðnu á landleið og Álseyjarþrek upptekið!

búbú

Siggi Búbú á loðnuvertíð feb. 2011 með Þorsteinn í baksýn en við komum í kjölfarið á honum inn á Þórshöfn til löndunar.  En Búbú er einn þeirra sem hafa komið við í Álseyjarþrek og rifið í lóðinn og sprett úr spori á brettinu. 



Við erum að nálgast Þórshöfn með fyrsta fullfermis túrinn af loðnu á þessu ári 2012. Er það fyrr en við hefðum þorað að vona. En Þórshafnar "alltmögulegt" manninum og meistari Oddur Skúlason kom þetta ekki á óvart!! Síður en svo, hann var EKKI búinn að spá þessu, hann einfaldlega SAGÐI að við KÆMUM á Þórshöfn 7 janúar með fullt skip, sem verður raunin því þar verðum við í kvöld...Æ,æ,...gleymdi að fá hjá honum Lottó tölur kvöldsins í tíma;-)

En sem sagt þessi fyrsti túr ársins gekk fínt og voru þetta höl frá rúmum 100 tonnum upp í 450 tonn. Túr sem hófst miðjan þriðjudag þann 3 janúar með því að nótin var tekinn um borð,búið var að setja upp korkaleggjarann, þá var trollinu hent í land og eftir jú einhverja bið eftir lagfæringar á nýja korkaleggjaranum vorum við farnir seint um kvöldið. Fyrsti viðkomustaður var Eskifjörður, þar náðum við í nýtt troll frá Egersund. Það var fljótlega gert á miðvikudagskvöldi og fimmtudagsmorguninn vorum við mætir á miðin norðaustur af Langanesi.

Núna er stutt í Þórshöfn þar sem við ættum að vera um hálftíuleitið með fullt skip af loðnu, líklega um 1.630 tonn, af því erum við með kælt í tveimur tönkum sem fara til manneldis.

Svo nýja árið fer vel af stað og ekki bara í veiðum, því Álseyjarþrek er þétt setið þessa dagana og eru sumir að fara jafnvel tvisvar á sólahring. Svo einhverjir vistmenn ætla greinilega að standa við sitt áramótaheit þetta árið ( eða þessa dagana? ) varðandi aukatíma í salnum þá horfa menn helst á tíman sem honum Sibba er úthlutað. Á þeim tíma í dag voru fjórir mætti tilbúnir að taka á því, en Sibbi var ekki ein af þeim;o)...

Meira síðar með bestu kveðjum frá Álsey á landleið að nálgast Þórshöfn, Kristó


Flettingar í dag: 52
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 179
Gestir í gær: 72
Samtals flettingar: 707995
Samtals gestir: 218273
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 12:13:41