Hausmynd:Jón G Ingibergsson

Álsey VE 2
    ...þar sem hlutirnir gerast!

 

09.01.2012 14:26

Komnir aftur á miðin og fín byrjun

 

Kristina EA 410 stórt og öflugt skip Samherja að toga á loðnumiðunum í morgun

 

Löndun gekk alveg ljómandi vel á Þórshöfn og lauk henni um klukkan tíu sunnudagsmorgun og við farnir út með það sama. Við fengu skítabrælu á leið okkar á miðin, en vorum þó komnir á miðin og búnir að láta trollið fara um miðnætti. Um sjöleitið í morgun var svo híft og fyrsta halið komið í hús, (skip) það runnu 300 tonn niður í tóma lestartanka eftir það hal. Svo það er fínasta start á þessum túr. Þó er ekki alveg eins líflegt hér núna og t.d. í morgun. Það glæðist vonandi og við fáum frið fyrir veðri til fiska meira. En spáin lítur ekkert alltof vel út. En er á meðan er og við náum vonandi einhverjum tonnum til viðbótar fyrir næstu brælu.

Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili og kveð héðan frá Álsey á loðnumiðunum austur af Héraðsflóa, Kristó

 

Kristina EA 410 á loðnumiðunum í morgun

 

 

Sólarupprisa við Íslandsloðnumið 

 

 

 

 

 

Flettingar í dag: 52
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 179
Gestir í gær: 72
Samtals flettingar: 707995
Samtals gestir: 218273
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 12:13:41