Hausmynd:Jón G Ingibergsson

Álsey VE 2
    ...þar sem hlutirnir gerast!

 

10.01.2012 21:58

Að vera inn á Þistilfirði er góð skemmtun, í brælu;)

Beðið eftir hafnarplássi 


Við yfirgáfum loðnumiðin vegna yfirvofandi brælu um miðjan dag í gær  með 600 tonn eftir tvö höl. Stefna var tekinn á Þórshöfn til að landa þessum afla í vinnslu til manneldis meðan brælan gengur yfir. Ef allt hefði verið eðlilegt þá hefðum við verði komnir inn til Þórshafnar í nótt sem leið. En veðrið var alls ekki eðlilegt í nótt, svo ekki sé meira sagt! Því fljótlega eftir miðnætti var komið þetta líka fárviðrið og héldum við sjó, komumst ekkert áfram fyrir risastórum sköflum. Það var loks um hádegisbilið sem við vorum að skríða inn Þistilfjörðinn og að Þórshöfn og erum við þar ennþá.

Fyrir utan Þórshöfn bíðum við ásamt þeim á Júpíter eftir því að fá leyfi til að fara inn að bryggju. Þar eru þeir Guðmundur VE 29 og Þorsteinn ÞH 360 í löndun, auk þeirra er þar fraktari.

Á meðan höfum við það bara gott hér saman á GRUNNU vatni, spilum og horfum á RAMBO,;-) við vitum ekkert um hvenær við leggjumst að bryggju!  Við erum bara bjartir, þrátt fyrir að vera um stund veðurtepptir, því að vera inn á Þistilfirði er góð skemmtun...í brælu:0

Það verður þröngt við höfnina þar sem allur loðnufloti Ísfélagsins fyrir utan Sigurð VE 15,  verður þar saman kominn, þegar við og Júpíter verðum komnir þar inn líka.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili og kveð héðan frá Álsey inn á Þistilfirði , Kristó 


Flettingar í dag: 52
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 179
Gestir í gær: 72
Samtals flettingar: 707995
Samtals gestir: 218273
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 12:13:41