12.01.2012 21:29
Löndun á Þórshöfn og nýr badminton meistari Álseyjar krýndur?
Álsey VE 2 í löndun á Þórshöfn í dag
Löndun á Þórshöfn fer senn að ljúka eða líklega um miðnætti í kvöld. Verður þá væntanlega farið beint á miðin sem eru núna á stærra svæði norðaustur af Langanesi og mér skilst að það hafi verið þar þokkaleg veiði í dag, loks þegar blessuð loðnan fannst aftur eftir brælu og skipin gátu farið að toga aftur.
Við vistmenn á Álsey höfum gert eitt og annað okkur til dundurs hér á Þórshöfn í þessari inniveru, eins og hressandi gönguferðir í köldu en fallegu verði, sund, þá Badminton en við komum að því síðar. Þá hafa menn tekið í spil og gerst spekingslegir í sögnum eitt, grand,lauf, spaði, pass og hvað þetta heitir nú allt,...jú Brids. En gamla góða Eyrin er því miður lokuð og því ekki hægt að komast þar í gómsæta pitsu og ís kaldan:) Þar sem hún Nanna tók upp á því að fara í fæðingarorlof;-)En Nanna innilega til hamingju með peyjann;)...en mér skilst að nýr vert sé ekki langt undan og muni opna, vonandi sem allra fyrst. En það má samt hrósa sjoppunni sem hefur stækkað veitingasalinn og er hægt að finna það fínustu veitingar, sjónvarp til að horfa á bolta og stöð2.
Talandi um bolta þá var ekki leiðinlegt fyrir okkur púlarana að glápa (aðallega fyrri háleik ;) ) í gær á leik þegar þeir unnu Billjarða liði Man $ity 0-1 í fyrri leik liðana í undanúrslitum deildarbikarsins. Við púlararnir hér um borð eða helmingur vistmanna vonumst auðvita eftir því að þeir klári seinni leikinn líka og komi sér á nýja Wembley í fyrsta skiptið.
En þá af Badmintonleik sem ég varð vitni af í dag! Eftir ágætis myndvélagöngu með Sigga Búbú, lág leið okkar í Íþróttahúsið til að fara í sundið og þar urðum við vitni af badmintonleik á milli tveggja vistmanna á Álsey annars vegar sykurpúðanum Eiríki Arnórs og??...til að gera langa sögu stutta þá velti hann Eiríkur ÞUNGU hlassi úr vegi og af STALLI sjálfum Sibba Óskars hinum ósigrandi fram af þessu. Já það sem við sáum var 3-0 öruggur sigur Eiríks og með það fórum við í sund með breitt bros. Eftir komu þeir félagar og annar í betra skapi, eða þannig.
En hvað um það þá er bara að bíða efnis fyrir næsta blogg sem verður úr næsta túr, þar til bið ég að heilsa héðan frá Álsey við bryggju á Þórshöfn. Kveðja Kristó
Siggi Óla stýrimaður kuldalegur eftir hressilega göngu í dag þegar við Búbú mætum honum
Kirkjan á Þórshöfn í fallegu vetraveðri í dag
Hér er svo ein fá leik dagsins í dag milli Eiríks og Sibba sem endaði frekar á óvæntum nótum!
