15.01.2012 20:38
Komnir í löndun á Þórshöfn með fullfermi
Búbú og Bjarki glaðir í bragði eftir gott hal
Við fórum í þennan túr seint á fimmudagskvöldið og í hádeginu í dag tveimur og hálfum sólahring síðar erum við aftur komnir á Þórshöfn með fullt skip af loðnu. Það var stutt á miðin og rétt fyrir hádegi föstudag var búið að hífa fyrsta halið 450 tonn. Svo þetta fór vel af stað og hélt áfram nokkurn vegin svona. Sex hölum síðar var allt orðið fullt hjá okkur og fór kælt í tvo síðustu tankana sem fer í vinnslu til maneldis, samtals gæti þetta verið um 1.700 tonn.
Í byrjun túrs fengum við fréttir af góðum mælingum hjá Hafró sem gefur góð fyrirheit um að gefin verði út talsverður viðbótarkvóti síðar í þessum mánuði. Fyrstu yfirferð yfir útbreiðslusvæði hrygningarstofns loðnu er lokið og alls hafa þeir mælt 900.000 tonn, áfram er gert ráð fyrir að 400 þús. tonn séu skilin eftir til hrygningar í lok vertíðar. En loðna fannst á öllu mælingasvæðinu en var víða dreifð. Mun Árni Friðriksson fara í viðbótaryfirferð yfir svæðið sem bera að fagna og hrósa fyrir. Er hann núna austur fyrir landinu í þessu skyni. Ráðgjöf Hafró mun sem fyrr segir liggja fyrir síðar í mánuðinum að loknum þessum mælingum Árna Friðrikssonar um heildaraflamark fyrir vertíðina 2011/2012.
Það stefnir því í góða vertíð miðað við þessar fréttir, sem er vel fyrir okkar þjóðarbú, en „Allsherjar" ráðherra Steingrímur J. Sigfússon var í þætti á Bylgjunni í morgun og var búinn að reikna þetta upp í 20 -25 milljarðar loðnuvertíð. Ekki ónýt búbót það...fyrir hann að vinna úr:(
Læt nokkrar myndir frá þessum síðasta túr fylgja með sem og frá bryggjunni á Þórshöfn í dag.
Ég læt þetta þá duga í dag héðan frá við löndunarbryggjuna á Þórshöfn á Langanesi. Kveðja Kristó
Yfirvélstjórinn Svanur á vaktinni og gerir eitt stjór tankinn kláran fyrir vinnslu
Landað úti á sjó!‘!, tilfærsla á afla eftir að fréttir bárust um væntanlega kvótaaukningu og því var farið í að breyta lestarplani þar sem aflamagn í land yrði stærra en til stóð og vinnslutankar græjaðir upp á nýtt.
Eiríkur í löndun á sjó...er hann þá á tímakaupi líka?;-)
Það er nóg að gera þarna hjá Rabba og hans fólki í loðnubræðslunni á Þórshöfn þessa dagana sem og hjá þeim í frystihúsinu í vinnslu við frystingu á loðnu...líf og fjör á Þórshöfn
Geir ÞH 150 inn á Þórshöfn á köldum en fallegum janúar vetrardegi
