19.01.2012 22:40
Löndun lokið og við farnir út frá Þórshöfn
Guðmundur VE 29 í löndun á frystum loðnuafurðum í „blíðunni á Þórshöfn í dag
Þetta var stór og falleg loðna sem landað var í frystingu, með þeim stærri í einhver ár. Eins fæst gott magn af lýsi og mjöli með því sem fer í bræðslu.
Það var talsvert magn af loðnu að sjá síðast þegar við vorum á miðunum, sem hafði bæst við það sem fyrir var og stærri en áður, eins og fyrr segir. Þá var góð veiði á flotanum fram að brælu og ég veit að sá gamli Græni Ísleifur VE 63 fékk fullfermi í þremur hölum 1.000 tonn rúm eða svo, flott hjá þeim eftir leiðinda bras í túrnum á undan.
En við erum sem fyrr segir á leið á miðin og ættum að vera þar væntanlega um hádegisbilið ef af líkum lætur. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra og bið að heilsa héðan frá Álsey á útleið, kveðja Kristó
(Uppfært fimmtudagsmorgun)... erum komir á miðin djúpt austur í Héraðsflóann og vorum að láta trollið fara, það hefur verið fínasta veiði hjá þeim sem vonandi heldur bara áfram.
kv. Kristó
Bjarki Kristjáns tekur á því á hlaupabrettinu í Álseyjarþreki í dag(fimmtudag) og Sigþór teygir á eftir blóð, svita og tár;-)
Uppskipun, útskipun, vinnslu-og bræðslulöndun.
Það hefur verið nóg að gera við höfnina á Þórshöfn í janúar, þar sem skip Ísfélagsins hafa verið nánast daglegir gestir í löndun á loðnu og hafa landað þar nú þegar ríflega 17.000 tonnum, þá fór Þorsteinn með einn farm til Eyja. Fraktskip því komið á Þórshöfn reglulega til að ná í þær afurðir. Hér erum við á Álsey í löndun á afla sem fer í vinnslu til manneldis, í lýsi og fóður, þá er það Guðmundur VE 29 sem er að landa þarna Frystum loðnuafurðum og síðar í bræðslu og að lokum er þarna Norskur fraktari að nái í frystar afurðir Ísfélagsins. Þetta er lífæð og hjól atvinnulífsins sem hér snýst á fullu, sem er svo að gefa fínan gjaldeyri fyrir okkar þjóðarbú
