Hausmynd:Jón G Ingibergsson

Álsey VE 2
    ...þar sem hlutirnir gerast!

 

22.01.2012 10:09

Lagðir af stað á leið til Eyja með fullfermi af loðnu.

 

Þessi túr gekk ljómandi líkt og hefur verið í þeim túrum á undan, þó svo að hann hafi farið aðeins hægar af stað. Þá erum við búnir að fylla og erum lagðir af stað á leið heim til Eyja með okkar fyrsta farm þangað á þessari vertíð, rúmlega 1.700 tonn og mun einhver hluti þess afla fara í vinnslu til manneldis. Svo það færist líf og fjör við FES strax eftir helgi þegar löndun úr Álsey hefst um hádegi mánudag 23 janúar, þann tímamótadag. Já það eru 39 ár á morgun frá því maður flúði Eyjuna fögru grænu upp á land með Berg VE 44,...vá hvað það er skítið og maður er rétt þrjátíu og fimm, skil ekki hvernig það dæmi gengur upp;-)

En Eyjan fagra græna breyttist upp frá þessum degi í svarta drungalega og allt af því draugaeyju :(...en með krafti, kjafti, klóm og ekki síst kjarki lögðust menn á eitt! að þarna yrði byggð upp blómleg byggð á ný. Framhaldið vitum við öll. :-) Loðnulöndun hófst í miðju gosi 1973 og erum við á þessum degi þrjátíu og níu árum síðar að koma líkt var gert þá með vænan skammt af loðnu til löndunar á Eyjuna okkar fögru í suðri.(kannski aðeins stærri skammt;)) Er ég endalaust þakklátur foreldrum mínum og öllum þeim sem skiluð sér aftur með dugnaði og hafa byggt upp og skapað í Eyjum gott samfélag á ný. Um leið og ég skil vel þá sem ekki gátu hugsað sér heim á ný, því það var alls ekki sjálfgefið að snúa til baka. En sem betur fer gerðu það nógu margir og erum við smátt og smátt að ná fyrri styrk og íbúatalan fer hægt stígandi upp á ný.

Nóg um það við verðum sem fyrr segir í Eyjum um hádegisbilið á morgun og það má segja að loðnuvertíðin sé þá loks að komast á skrið í Eyjum, því væntanlega er stutt í það að Ísfélagsskipin fari að detta þar reglulega inn eitt af öðru. Í Eyjum hafa VSV skipin verið að landa vestur frá reglulega í janúar og núna við á okkar stað austur frá.  Veiðisvæðið færist nær og það er orðið stutt í þá línu sem flottrollveiðar eru bannaðar. Gömlu góðu flottu loðnuskipin Sigurður VE 15 og Víkingur AK 100 eru mætt á svæðið vopnaðir eingöngu nót auk þeirra eru þeir Norsku byrjaðir að kasta nót.

Svo framundan er líf og fjör...alltaf fjör í Eyjum þegar fiskast vel núna sem áður.

Læt þetta dugað héðan frá Álsey VE 2 á landleið.

Kveðja Kristó

 

Litli aðstoðarmaðurinn minn Helgi Marinó hér um borð loðnuvertíð feb. 2011 eftir að hafa tekið kost með pabba sínum, hlakka til að fá hann aftur um borð á morgun við sömu iðju og honum finnst það ekki leiðinlegt heldur;-)

 

Sigurður VE 15 var mættur á loðnumiðin, alltaf gaman að sjá hann. En þessi var tekinn á vertíðinni í fyrra.

Flettingar í dag: 54
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 179
Gestir í gær: 72
Samtals flettingar: 707997
Samtals gestir: 218273
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 13:40:07