07.02.2012 09:20
Hvalveiðar í nót og við á leið til Eyja með góðan loðnuskammt
Nótin var dreginn í fyrsta sinn á þessari vertíð og nýi fíni korkaleggjarinn var þá sömuleiðis notaður í fyrsta sinn
Þá eru peyjarnir búnir að gera “VEL“ sjóklárt eins og það var orðað. Eftir brösóttan fyrsta nótatúr þessa vertíða, þá erum við á heimleið með 1.400 tonn. Gekk ágætlega þar til við fengum fjóra hvali í tveimur köstum eða tvo „heimska“ hvali í hvort kast í nótina í fyrri nótt með tilheyrandi leiðindum, afla missi og rifið, þegar allt var gert til að losa þá út. Þá var ekki annað í stöðunni en að tæma nálakörfuna og smella nótinni saman á ný eftir þær björgunaraðgerðir. Stóðu peyjarnir sig vel að vanda í þeim efnum. Í gær og nótt var svo árangur í samræmi við lóð eða lítill. Þá er að koma sér heim fyrir stóru bræluna. Styttist og styttist væntanlega í að grunnnótin verði brúkuð,...er það næst? Kemur í ljós. En við drífum okkur heim á leið og skilum allavega þessum 1.400 tonn fyrst og sjáum svo til. En í Eyjum verðum við væntanlega í fyrramálið, hvað snemma veit ég ekki fer eftir veðri og vindum, sem stendur er hér SKÍTABRÆLA!, ef allt væri eðlilegt þá væri það milli 6 og 7, en það er ekki að fara gerast held ég;0...þá ætla ég að láta þetta duga héðan frá Álsey á landleið í skítabrælu:
Kveðja Kristó
Og svo toga...fram á gengið Svanur og Orri vélstjórar og Bjarki taka á því
Hér er það Börkur NK 122 við loðnuveiðar á sunnudaginn, líklega í sínum síðasta túr sem slíkur. En á morgun mun hann heita eitthvað allt annað! Já og verða því fyrrverandi Börkur, þar sem þeir austfirðingar eru að fá nýtt skip frá Noregi á morgun miðvikudag sem mun taka við þessu nafni. Glæsilegt skip að sjá á mynd smíðað árið 2000 og hét áður Torbas. Til hamingju austfirðingar!
Friðarsúla á loðnumiðunum?
„Núverandi / fyrrverandi!“! Börkur NK 122 á tunglskinsbjörtum febrúardegi á loðnumiðunum 2012 og sá græni er þarna líka VE 63 ;)...UPPFÆRT ; Hann heitir þá frá og með deginum í dag Birtingur NK 124 og er verið að breyta þessu á meðan löndun stendur yfir... eins og má sjá á þessum vef hér: http://emilpall.123.is/blog/2012/02/07/598150/
með skellum við skundum á braut...bræla með stæla á leið til Eyja: tekið kl16:56 í dag.
