Hausmynd:Jón G Ingibergsson

Álsey VE 2
    ...þar sem hlutirnir gerast!

 

Færslur: 2012 Febrúar

29.02.2012 09:26

Erum á fullu stími í átt að loðnumiðunum, eftir löndun á Þórshöfn

 

 

Ísfélagið byggir upp og bætir landvinnsluaðstöðu sína á Þórshöfn

 

Við vorum komnir á Þórshöfn um miðnætti mánudagskvöld og rétt eftir hádegi þriðjudag var búið að landa og við lagðir af stað. Norður leiðinn er farinn enda færist loðnan hratt og núna vestur með landinu, var flotin á veiðum í gær út af Garðskaga. Við erum sem stendur (kl 9:00) út af Ísafirði og ættum við að geta verið á miðunum í kvöld (miðvikudag) fer auðvita eftir hvernig veður við erum að fá í restina af þessu stími, hvort þar muni draga úr ferða hraðanum, en við erum að detta inn í smá brælu. þá er bara að vona að veður og veiði verði í svaka stuði í kvöld.

Stefnan er tekinn á að landa þessum næsta túr í  hrognakreistingu. Þorsteinn reið á vaðið í þeim efnum og er væntanlega á leið til Eyja með fyrsta framin sem verður kreist hjá Ísfélaginu í ár. Júpíter landaði í gær í vinnslu í Eyjum um 850 tonnum og þá er Sigurður á miðunum og líklega Guðmundur líka.

Í þessu stutta stoppi á Þórshöfn rölti ég út í Samkaup í smá kostleiðangur, tók ég myndavélina með og smellti nokkrum myndum í leiðinni af þeim framkvæmdum sem núna eru ný hafnar á vegum Ísfélagsins. En þar eru jarðvegsframkvæmdir í fullum gangi fyrir nýjum húsakosti Ísfélagsins. Húsakost sem mun svo verða til þess að auka frystigetu félagsins á Þórshöfn. Það á ekkert að hanga við þetta, en það er áætlun upp um að þarna verði hægt að byrja að frysta síld og væntanlega makríl í þessum nýju húsakynnum í byrjun ágúst á þessu ár 2012. Svo það er ekki bara Í Eyjum sem Ísfélagið er að framkvæma á fullu til að bæta landvinnsluna. Þetta verður að teljast góðar  fréttir á Þórshöfn og í Vestmannaeyjum sem bera að fagna og auðvita á landinu öllu því með þessum framkvæmdum fylgir aukin umsvif, atvinna og tekjur í okkar þjóðarbú. Svo það verður gaman að fylgjast með þessu verki og sjá þetta koma upp og ennþá betra þegar afköstinn munu svo aukast síðar í sumar. Ég læt fljóta með þessari færslu nokkrar myndir teknar í gær á þessu athafnasvæði og vonandi fleiri myndir síðar á næstu stigum á þessari framkvæmd.

Læt þetta þá duga héðan frá Álsey á fullu stími á leið okkar á loðnumiðin. Bestu kveðjur Kristó

 

Líkt og á myndin að ofna þá skoðar þeir Rabbi verksmiðjustjóri á Þórshöfn og Svanur yfirvélstjóri á Álsey sig um á byggingarsvæði Ísfélagsins á Þórshöfn í gær. þar sem nýtt hús mun fljótlega rísa sem mun auka og bæta frystigetur félagsins þar.Rabbi fer vel yfir stöðuna og sýnir  honum Svani svæði og fræðir hann um gang mála. Ég þarf að vinna betur úr þeim upplýsingu áður en ég ber það á borð hér fyrir þá sem vilja fylgjast með;)

 

 

Gamla sundlaugin og Kaupfélagsbústaðurinn á Þórshöfn

 

 

Sem mun fljótlega fá ÍSssskaldan nágranna sér við hlið,... til að ylja sér við;)

 

Hér er stutt í næstu brott för hjá henni Álsey úr blíðunni á Þórshöfn, liggur leiðinn norður fyrir landi og sem leið liggur niður aftur á loðnumiðin í Faxaflóa sem verður næsta stopp.

 

Á leiðinni grilluðum við lambalærisneiðar og mér til aðstoðar var þessi ungi maður Viggi vélstjóri (eða hvað?)sem er loks kominn aftur um borð eftir flakk út í heimi á miðri vertíð;-)...en hann vildi allavega láta það líta út fyrir sem hann hefði verið þessi mikla hjálp við grillið...en sá sem var í raun þessi hjálp, reynir að teygja sig inn á myndina bakvið hann Vigga...sem er...

 

 

Auðvita var það hann Eiríkur Arnórsson sem stóð vaktina við grillið og kann ég honum miklar þakkir fyrir og á hann inni hjá mér öl þar sem hann var svikinn um hann þarna á  meðan þessu stóð;-)

 

27.02.2012 10:20

Á leið til Þórshafnar með fullfermi af loðnu og í bikarsigurvímu;)

Loðnumiðin útaf hafnarminni Grindarvíkur í gær í smá kalda og við að fylla

 

 

Við fórum út kl. þrjú á laugardag og byrjaði Þessi túr vel hjá okkur, það stóðu eftir rjúkandi kaffibollar í borðsalnum, eftir að hann Siggi Hjöll þeystist inni borðsal og kallaði hátt „KLÁRIR“  ný búið að sleppa og  varla búið að taka sopa af þessum kaffibollum.

Fyrir utan Eiðið  var svo tekinn tvö köst á stuttum tíma sem samtals skilaði um 650 tonnum af átulausri loðnu en þó heldur smærri en þeirri sem er fremst í göngunni.  Þá tók við leit í vestur í átt að flotanum sem var kominn útaf Grindavík. Það var svo um morguninn(sunnudags) sem við köstuðum aftur tvisvar í mjög góðu lóði og vorum við búnir að fylla skipið fyrir hádegi. Svo túrinn endaði eins og hann byrjaði mjög vel. 

þá er Sigurður VE 15 sennileg að klára bræðslulöndun á Þórshöfn, Júpíter að klára vinnslulöndun í Eyjum og þá tekur Þorsteinn við af Júpíter og sjálfsagt er Guðmundur að frysta. Svo það er áfram rífandi gangur í þessu.

Leiðinn okkar liggur til Þórshafnar með rúm 1.800 tonn, sú sigling tekur okkur um einn og hálfan sólahring, líklega náum við á Þórshöfn fyrir miðnætti í kvöld. Svo þetta er heldur lengra stím en við höfum verið í undanförnum túrum, en ekkert nýtt þó. Þetta er hluti af okkar róðralagi allt árið að sigla frá norður svæðinu, til Eyja og öfugt með síld, makríl og núna loðnu. þegar um mikinn kvóta er að ræða og veiðar ganga vel eins og núna,  þá er gott að skipin geti notað tvo löndunarstaði, svona til að geta aukið afköst í landi og saxað á kvótann.

Þá er bara að taka upp spilastokki, horfa á t.d á Arsenal bursta Spurs, Liverpool vinna bikar og svoleiðis á þessari leið, þá er ekki hægt að láta sér leiðast;) en það hefur ekki verið mikill tími í svoleiðis undanfarið. Þ.e.a.s  sjá Liverpool vinna bikar;) ,gefa sér tíma til þess almennt að spila eða horfa á sjónvarp eða láta sér leiðast;-)...þá eru peyjarnir duglegir að finna sér verkenni eins og að splæsa nokkra faðma af stroffum og bæta á þær birgðir sem af er tekið, það lætur jú alltaf eitthvað undan í átökum við að ná inn stórum köstum.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra og bið að heilsa héðan frá Álsey á landleið útaf sunnanverðum austfjörðum á leið til Þórshafnar með vænan afla. Kveðja Kristó.

Dælt úr nótinni og þeir félagar okkar á Þorsteini ÞH 360 kompanískipið Ísfélagsins gerir slíkt hið sama, rétt utan við Grindavík í gær.

24.02.2012 12:39

Mættir til Eyja með vænan vinnslu og bræðsluskammt

 

 

 Sighvatur Bjarnason VE 81 að draga nótina í gær og Aðalsteinn Jónsson SU 11 er þarna í baksýn að snúast.

 

 

 

 

 

 

 

   Guðmundur VE 29 að dæla yfir til okkar í gær, takk fyrir félagar

 

A

   Hér er afmælisbarn dagsins 23 feb. Siggi Óla stýrimaður í axjón um borð í Álsey í vetur

til hamingju með daginn Siggi Óla

 

 

 

21.02.2012 00:21

Komnir,farnir, komnir aftur og erum að landa í Eyjum

Á loðnumiðunum í dag norðan við Eiðið, Jón Kjartansson SU 111, Sigurður VE 15 og þá hið glæsilega skip þeirra Færeyinga Nordborg sem þarna er nýbúinn að kasta nótinni, Sigurður er fyrir miðri mynd hinsvegar að dæla og er orðin nokkuð þungur.

 

 

Svona gengur þetta fyrir sig þessa dagana. Það var örstutt á miðin og stoppið það var líka stutt. Fórum rúmlega tíu í gærkvöldi og við vorum komnir aftur í morgun kl 8:30 með 8-900 tonn af loðnu sem er verið að landa í vinnslu. Veiðisvæði var norðaustan Eyja tæpleg þremur tímum síðar var búið að kasta. Loðnan færist hratt vestur, í dag mátti sjá flotann á veiðum norðan við Eiðið og veiðin gekk vel hjá þeim þar. En það styttist óðum í hrognatöku svona miðið við prósentu hlutfall hrogna í hrygnunni. Það verðu vonandi hægt að frysta eitthvað magn af loðnu áður en það hefst. En ég ætla að láta þetta duga héðan frá Eyjum í bili með nokkrum myndum teknar í dag frá Eyjum beint af loðnumiðunum norðan við Eiðið. Bestu kveðjur Kristó.

 

 

Þarna má sjá þá Jón Kjartansson SU 111, Sigurð VE 15 sem virkar sem einver trilla utan á Norgborg úti af Eiði í dag (mánudag) En þess má geta að þeir á Sigurði fylltu sig þarna og eru núna á siglingu norður á Þórshöfn með þann afla sem fer svo í bræðslu, svo það er smá stíma sem þeir félagar eiga framundan.

 

 

 

19.02.2012 03:43

18.02.2012 16:25

Góður dagur á loðnumiðunum á afmælisdegi Bjarka Kristjáns

Afmælisbarn dagsins Bjarki Kr. býður hér Sibba Óskars í nefið, sem hann vel að merkja er hættur að gera en í tilefni dagsins þá þáði hann smá rönd;-)

 

 

 

Góður dagur á loðnumiðunum, eftir stutt stopp á miðunum erum við á leið til Eyja með 1.200 tonn af stórri og fallegri loðnu sem að mestu fer í vinnslu, en eitthvað fer þó í mjöl og lýsi, sem sagt bræðslu. Fengum þetta að mestu í einu kasti rétt fyrir hádegi og voru peyjarnir komnir inn í rjómapiparsteik  fljótlega eftir hádegi, afmælisbarn dagsins sá svo um að gefa með þessu gott rauðvín sem toppaði þessa máltíð eftir góðan dag á miðunum, á þessum afmælisdegi hans Bjarka Kristjáns .(P.s Almar ég á smá afgang!"!)  Það er ekki langt stím heim en við fengum þennan afla við Kötlutanga eða þar um bili. Við eigum því stutt eftir heim til Eyja en þar verðum  við um kl 16:37 eða svo;) rétt tími til að klára rjómabolluna áður en farið er heim, svo ekki leggjum við af í dag;)...En þetta gengur sem sagt ljómandi vel þessa dagana, stutt á miðin og stutt stopp þar. Ég læt þetta duga og bið að heilsa héðan frá Álsey rétt austan við Eyjar á heimleið. Kveðja Kristó

 

KAP VE að kasta við hlið okkar í morgun

 

Frjáls á loðnumiðum...snemma í morgun 

 

KAP VE 4 við það að fara að kasta nótin á miðunum í dag

 

 

Svífur yfir loðnumiðunum með KAP á kantinum

 

Hallar undan fæti...með 1.000 tonn á síðunni

 

Frá Eyjum kom með okkur Japani sem við ferjuðum yfir í Nordborg frá Færeyjum. Hann þakkaði vel fyrir sig áður en hann fór í morgun. Af morgunverðarborðinu var hann yfir sig hrifin af harðfiskinum sem hann gerið góð skil, minnti helst á einn ákveðinn vistmann á Álsey við þá iðju og þá fannst honum hafragrauturinn góður en hann var VÆGAST SAGT HRÆDDUR við lifrapylsusneiðarnar sem voru þarna á borðinu líka;-)

 

Að lokum er hér ein af Sigga Óla úr síðasta túr

16.02.2012 15:30

Á leið til Eyja með vænan vinnsluskammt eftir brælu og smá bras

Siggi Óla einbeittur í morgun á loðnumiðunum

 

Löndun lauk um miðnætti þriðjudag. En brottför tafðist fyrir þennan túr þar sem kafarar þurftu að vinna við  suðuvinnu eftir löndun til að koma í veg fyrir leka eftir óhapp í astik klefa.

Vorum við farnir í gærmorgun rétt fyrir kl. átta. Í fyrstu var loðnan ekki að vilja láta veiða sig í Bugtinni, flúði niður á botn. En við áttum svo  200 tonna kast í gærkvöldi, þá var leiðinda bræla í nótt og ekki þótti ráðlegt fyrir okkur að kasta upp í fjöru á okkar flugdreka sem tekur á sig mikinn vind. Það var svo kl 05:57 sem Sibbi vaktmaður ræsti peyjana og við fegnum þetta fína 500 tonna kast og þá var svo klárað rétt fyrir hádegi. Búið að fylla miðað við 40% kælingu í öllu tönkum, nema þeim stærsta sem geymir 430 tonn sem mun fara í bræðsluna sem sagt mjöl og lýsi. Þetta er þá líklega milli 7- 800 tonn sem fer í vinnslu og samtals því um 1.200 tonn á leið til Eyja og lendum við þar líklega milli átta og níu í kvöld, þar sem það er komið skítabræla á okkur og ferðahraðinn er dottin niður um einhverjar mílur.

Meira líf og fjör í Eyjum þar sem loðnufrystinn er hafin á fullu  Þorsteinn er að landa og við á leið með meira. Þá er Júpíter á leið til Þórshafnar með fullfermi sem hann fékk í tveimur köstum í nótt og landar þar í bræðslu flott hjá þeim Júbba peyjum. Svo það er mikið um að vera hjá uppsjávarskipum Ísfélagsins þessa dagana.

Ætla að segja þetta gott í bili, bestu kveðjur frá Álsey á landleið í leiðinda brælu, Kristó

 

Siggi Búbú loðinn á loðnumiðunum í morgun;-)

 

"Blátt, blátt"

Silkiský og lognið eftir og undan storminum á loðnumiðunum í morgun

13.02.2012 13:19

Á leið til Eyja með fullfermi eftir 6 tíma á miðunum

Nýi og gamli Börkur NK 122 á loðnumiðunum við Hrollaugseyjar í morgun og báðir voru þeir með góð köst. En gamli Börkur er auðvita núverandi Birtingur NK 124 sem er nær á þessari mynd;)

 

Þessi túr endaði með sama stæl og hann byrjaði. Eins og ég sagði frá í færslunni í morgun þá fengum við 700 tonn í fyrsta kasti, eða réttara sagt í því fyrra, þar sem annað kastið dugði til að fylla og gott betur þar sem við gáfum þeim á KAP VE 4 rest. En í millitíðinni höfðum við fengið frá vinum okkar kompaní skipinu Júpíter ÞH 363 um 300 tonn. Þetta er því sennilega sá túr sem við höfum notað minnstan tíma í á miðunum eða sex klukkustundir sléttar. Því peyjarnir voru ræstir af vaktmanni allrar vaktmanna Sigga Búbú kl 04:20 og inn voru þeir komnir í steikta ýsu í raspi kl: 11:20 upp á sek. Með þessum túr má segja að upphaf loðnufrystingar sé að hefjast í Eyjum  hjá Ísfélagi Vestmanneyja að krafti, þó svo eitthvað hafi farið í frystingu undanfarið þá aðallega á Þórshöfn, en núna stendur til að frysta talsvert úr þessum túr og erum við þess vegna með kælt í nokkrum tönkum. Líklegt magn er því um 1.500 tonn að landi. Svo vertíðarstemmingin mun væntanlega lita mannlífið í Eyjum næstu dag ef af líkum lætur og fjörið hefst strax á miðnætti þegar við á Álsey VE 2 áætlum að lenda í Eyjum.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í dag og kveð héðan frá Álsey á landleið, Kristó

 

Dælt yfir í KAP VE 4  

13.02.2012 07:19

Fyrsti grunnnótartúrinn búinn og annar hafinn með stæl!

 

 

 

Júpíter ÞH 363 dælir hér yfir til okkar vænum skammti í framhaldi af okkar góða kasti árla morguns, svo þessi túr fer vel af stað. En takk kærlega fyrir okkur Júbba peyjar;)

 

Við lönduðum í Eyjum í gær sunnudag fullfermi eða um 1.800 tonnum, sem fór í bræðslu. Gekk sá túr alveg ágætlega, fengum við í skipið á tveimur dögum frá Stokksnesi að Hornafirði. Í lok túrsins var lóðið farið að þéttast og köstinn að skila meiru og líkjast því sem við þekkjum oft á grunnnótinni.

Þá byrjar þessi túr svona líka vel, því við fengum í morgunsárið tæplega 700 tonna kast og erum við þessa stundina að fá rest úr nótinni frá vinum okkar á Júpíter ÞH 363 og það er ekki annað að sjá en það sé talsvert í þeirri rest. Það er sem sagt blússandi vertíðarstemming hér um borð þessa stundina og gaman. Hef þetta ekki lengra í bili og kveð héðan frá Álsey á loðnumiðunum við  Hrollaugseyja.

Beðið eftir strætó?? ...Nei vélstjórarnir Svanur og Þórshafnar Oddur bíða hér sallarólegir meðan þeir á Júpíter dæla vænum skammt yfir til okkar í morgun;-)

07.02.2012 11:26

prufa

 

07.02.2012 09:20

Hvalveiðar í nót og við á leið til Eyja með góðan loðnuskammt

Nótin var dreginn í fyrsta sinn á þessari vertíð og nýi fíni korkaleggjarinn var þá sömuleiðis notaður í fyrsta sinn

 

 

Þá eru peyjarnir búnir að gera “VEL“ sjóklárt eins og það var orðað. Eftir brösóttan fyrsta nótatúr þessa vertíða, þá erum við á heimleið með 1.400 tonn. Gekk ágætlega þar til við fengum fjóra hvali í tveimur köstum eða tvo „heimska“ hvali í hvort kast í nótina í fyrri nótt með tilheyrandi leiðindum, afla missi og rifið, þegar allt var gert til að losa þá út. Þá var ekki annað í stöðunni en að tæma nálakörfuna og smella nótinni saman á ný eftir þær björgunaraðgerðir. Stóðu peyjarnir sig vel að vanda í þeim efnum. Í gær og nótt var svo árangur í samræmi við lóð eða lítill. Þá er að koma sér heim fyrir stóru bræluna. Styttist og styttist væntanlega í að grunnnótin verði brúkuð,...er það næst? Kemur í ljós. En við drífum okkur heim á leið og skilum allavega þessum 1.400 tonn fyrst og sjáum svo til.  En í Eyjum verðum við væntanlega í  fyrramálið, hvað snemma veit ég ekki fer eftir veðri og vindum, sem stendur er hér SKÍTABRÆLA!, ef allt væri eðlilegt þá væri það milli 6 og 7, en það er ekki að fara gerast held ég;0...þá ætla ég að láta þetta duga héðan frá Álsey á landleið í skítabrælu:

 Kveðja Kristó

 

Og svo toga...fram á gengið Svanur og Orri vélstjórar og Bjarki taka á því

 

Hér er það Börkur NK 122 við loðnuveiðar á sunnudaginn, líklega í sínum síðasta túr sem slíkur. En á morgun mun hann heita eitthvað allt annað! Já og verða því fyrrverandi Börkur, þar sem þeir austfirðingar eru að fá nýtt skip frá Noregi á morgun miðvikudag sem mun taka við þessu nafni. Glæsilegt skip að sjá á mynd smíðað árið 2000 og hét áður Torbas. Til hamingju austfirðingar!

 

Friðarsúla á loðnumiðunum? 

 

„Núverandi / fyrrverandi!“! Börkur NK 122 á tunglskinsbjörtum febrúardegi á loðnumiðunum 2012 og sá græni er þarna líka VE 63 ;)...UPPFÆRT ; Hann heitir þá frá og með deginum í dag Birtingur NK 124 og er verið að breyta þessu á meðan löndun stendur yfir... eins og má sjá á þessum vef hér:  http://emilpall.123.is/blog/2012/02/07/598150/

 

með skellum við skundum á braut...bræla með stæla á leið til Eyja: tekið kl16:56 í dag.

 

 

 

06.02.2012 22:24

prufa( vegna bilunar)

Sibbi Óskars í kassanum í dag ( sunnudag 4 mars)

 

 

 

 

 

 

1.000 tonna kasti dælt um borð tekið af LHG í Faxaflóanum 1 mars 2012.( stolið þaðan;) )

 

 

 

02.02.2012 20:34

Á leið til Eyja með 1.800 tonn af loðnu

 

 

 

Dælt í gær og fljótlega upp úr þessu var vindhaninn farinn að sýna um 30 metra á sek. svo það var gert smá hlé á veiðum með svo stóð.

 

ATH! þetta hér að neðan er skrifað í gærkvöldi ,fimmtudagskvöld og erum við í þessum skrifuðum orðum um kl 20 föstudag að leggjast að bryggju,....en eins og kemur fram að neðan þá gengur frekar erfiðlega að koma þessu frá sér bæði er netið lélegt hjá okkur og 123.is kerfið eða tölvan að stríða mér eða bæði;-)...en 

 

 

 

Frá því við fórum frá Eyjum síðast, þá höfum við landað einum túr á Þórshöfn rúmum 1.600 tonnum og af því var eittvað unnið til manneldis. Við lögðum af stað í nýjan túr síðasta sunnudag frá Þórshöfn. Það hefur verið leiðinda brælutíð og við verið að leita uppi loðnu í flottrollið okkar, þar sem enginn alvöru kraftur hefur ennþá verið á nótarveiðum. Hefur þessi túr því gengið svona og svona, brælur og fiskifælur hefur einkennt hann. En þetta er náttúrlega bara væll að tala svona,...búnir að fiska um 11.000 tonn á þessum tíma,  það að einn túr gangi ekki alveg smurt. Já það þarf stundum að minna „suma“ Á;-) Nóg um það og þrátt fyrir allt þá erum við lagðir af stað heim á leið með 1.800 tonna af loðnu og ætlum við að vera í Eyjum annað kvöld með okkar annan fram í heimabyggð á þessari vertíð.

það hafa svo verið einhverjar fréttir af nótarveiði og það á frekar óvenjulegum stað. Víkingur AK 100 sem sigldi norður fyrir á leið sinni á miðin frá Akranesi, fann inn  á Grímseyjarsundi fínustu torfu sem hann kastaði á ,eftir daginn og annan til var hann búinn að fylla. Gott mál að vita af loðnu hér og þar. En voru þau skip sem eftir komu ekki feit af þessu að ég held og liggur straumurinn austur á ný. En á meðan þessu stóð héldum við kyrru fyrir og nudduðum uppúr sjó einhver tonn sem varð svo til að við fylltum í dag.

þá er farið að örla á nótaveiðum töluvert sunnar og þeim fjölgar sem þangað leita vopnaðir nót. Við fáum vonandi góðar fréttir af þeim skipum eftir löndun og á útleiðinni í næsta túr;-)

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili og vona að net og sími verði eitthvað skárri á næstu dögum og vikum. Svo við getum verði í betra sambandi við okkar fólk og jú bloggað líka;-)...en það hefur reynt á þolinmæðina að koma þessu hingað inn, þá er gott af henni er til nóg! (held reyndar að nýja kerfið hjá 123.is sé líka að stríða mér, en það erum þó þarna breytingar til góðs og verður vonandi svakalega flott á endanum;)

Bestu kveðjur héðan frá Álsey á landleið, Kristó

 

  • 1
Flettingar í dag: 54
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 179
Gestir í gær: 72
Samtals flettingar: 707997
Samtals gestir: 218273
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 13:40:07